Birkir Jón kýs með tillögu stjórnarinnar 14. júlí 2009 06:00 Birkir Jón Jónsson
Þriðji þingmaður Framsóknarflokksins hefur bæst í hóp þeirra sem hyggjast greiða atkvæði með tillögu meirihluta utanríkismálanefndar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Birkir Jón Jónsson, varaformaður flokksins, upplýsti samflokksmenn sína um það í gær að hann hygðist fylgja fordæmi Guðmundar Steingrímssonar og Sivjar Friðleifsdóttur í þeim efnum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Birkir Jón vildi ekki staðfesta þetta við Fréttablaðið í gær. Hann sagðist hafa gert upp hug sinn til málsins og skoðun hans yrði ljós við atkvæðagreiðslu í þinginu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, boðaði skyndifund með þingmönnum flokksins á föstudag, rakleiðis eftir að þau Guðmundur og Siv höfðu lýst yfir stuðningi við tillögu meirihlutans í ræðustól þingsins að honum forspurðum. Fundinum var stuttu síðar frestað um óákveðinn tíma. Fundurinn fór síðan fram í gær og mun Sigmundur hafa lýst yfir óánægju sinni með yfirlýsingar Guðmundar og Sivjar. Með stuðningi Birkis Jóns er orðið nær einsýnt að tillagan um aðildarumsóknin hlýtur brautargengi. Minnst þurfa fimm til sex þingmenn Vinstri grænna að samþykkja hana, en líklegt þykir að þeir verði átta eða níu. Nokkur kergja mun vera í grasrót Vinstri grænna vegna þess hversu margir þingmenn flokksins hyggjast styðja tillöguna. Rætt var um Evrópumálin fram á kvöld á Alþingi í gær.- sh
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Inga segir já Innlent „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Innlent Fleiri fréttir Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Ungt hægrifólk tekst á um ESB: „Stutt á milli stöðnunar og stöðugleika“ „Þetta er ekki alveg óvænt“ Einn makrílfarmur skilar yfir 400 milljóna króna verðmæti ESB geti hvorki tekið yfir orkuauðlindir né skipað Íslandi að leggja sæstreng Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Samræmdar reglur um símafrí settar EES án Íslands „ekki klúbbur sem maður vill vera í“ Sjá meira