Gekk í skrokk á sambýliskonu og kýldi löggu 20. apríl 2009 15:11
Þrjátíu og fimm ára gamall erlendur karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag í í tólf mánaða fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás á fyrrum sambýliskonu sína, umferðarlagabrot og fyrir að hafa kýlt lögregluþjón. Maðurinn reyndi einnig að skalla annan lögregluþjón þegar hann var fluttur í fangageymslur lögreglustöðvarinnar á Hverfisgötu. Af þessum tólf mánuðum eru níu skilorðsbundnir. Maðurinn játaði brot sín skýlaust fyrir dómi. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að hafa ráðist með ofbeldi á fyrrverandi sambýliskonu sína í október á síðasta ári og slegið hana hnefahöggi í andlitið þar sem hún lá í rúmi í svefnherbergi íbúðarinnar. Auk þess tók hann hana upp, henti henni í gólfið og sló hana í hnakkann. Maðurinn hélt áfram að veitast að konunnin inni á baðherbergi íbúðarinnar. Þar kastaði hann henni meðal annars í gólfið, sparkaði nokkrum sinnum í bak hennar auk þess sem hann greip í handleggi hennar og steig ofan á hana. Af árásinni hlaut konan mar á enni, bak við vinstra eyra og á höku hægra megin, grunnan 5 sm skurð á mjóbakið, eymsli yfir rifbeinum og í kviðarholi, mar á öxl og upphandlegg, marga yfirborðsáverka á framarmi, úlnliði og hendi, mar á olnboga, hné og ökkla og sprungur á tveimur miðhandarbeinum og brot í ystu kjúku hægri löngutangar. Maðurinn var síðan stöðvaður í desember á síðasta ári á bifreið sem hann ók undir áhrifum áfengis án þess að hafa ökuskírteini meðferðis. Hann var stöðvaður fyrri að sýna ekki nægilega aðgæslu þegar hann beygði af vinstri akrein til móts við Grensásveg 10 þannig að önnur bifreið sem ekið var á hægri akrein og á ljósastaur þar sem akstrinum lauk. Í kjölfarið af þessu atviki var hann fluttur í fangamóttöku lögreglustöðvarinanr á Hverfisgötu þar sem hann sló lögreglumann hnefahöggi í vinstri kjálka. Skömmu síðar gerði hann tilraun til að skalla annan lögreglumann í andlitið í varðstjóraherbergi stöðvarinnar en lögreglumaðurinn náði að víkja sér frá. Fyrir dómi játaði maðurinn skýlaust öll brot sín og var í kjölfarið dæmdur í 12 mánaða fangelsi. Fresta skal fullnustu 9 mánaða af refsingunni og sá hluti hennar falla niður að liðnum 2 árum. Maðurinn var einnig sviptur ökuréttindum í þrjú ár. Auk þess var hann dæmdur til þess að greiða fyrrum sambýliskonunni 600.000 krónur í skaðabætur.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira