Innlent

500 lampar, 32 ræktanir og 813 plöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á um 500 gróðurhúsalampa það sem af er árinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en lamparnir hafa fundist þegar kannabisræktanir hafa verið stöðvaðar.

32 slíkar ræktanir hafa verið stöðvaðar víðsvegar í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu. Sex þessara ræktana voru stöðvaðar í apríl en fram til þessa hefur lögreglan fundið 813 kannabisplöntur í mánuðinum.

Það sem af er apríl hefur lögreglan jafnframt lagt hald á um 3 kíló af kannabislaufum og tæplega 400 grömm af marijúana í þessum sömu aðgerðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×