Kom á óvart að Íslendingar frestuðu 28. apríl 2009 05:30 Íslenska ríkisstjórnin náði ekki að taka fyrir umdeilda þjónustutilskipun ESB á ríkisstjórnarfundi fyrir kosningar. Þetta kom stjórnvöldum í Noregi og Liechtenstein á óvart en þau höfðu staðið í þeirri trú að lokaafgreiðslan færi fram á fundi sameiginlegu EES-nefndarinnar fyrir helgi. Í staðinn verður tilskipunin sennilega tekin fyrir í maí.
Íslendingar komu Norðmönnum á óvart með því að vera ekki tilbúnir til að afgreiða þjónustutilskipun Evrópusambandsins á fundi EES-nefndarinnar á föstudaginn. Málið átti að taka fyrir á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku en mörg mál lágu fyrir og náðist ekki að afgreiða þetta mál. Ákvörðuninni var því frestað til næsta fundar EES-nefndarinnar í maí. Dagbladet í Noregi greindi frá því nýlega að íslenska ríkisstjórnin hefði komið stjórnvöldum í Noregi og Liechtenstein á óvart með því að stöðva loka-afgreiðslu þjónustutilskipunarinnar, slíkt hafi aldrei gerst áður. Slík afgreiðsla sé aðeins formsatriði. Einn af stjórnarflokkunum á Íslandi hafi stöðvað málið meðan kosningar færu fram. Þar sem þjóðirnar verði að samþykkja tilskipunina samtímis bíði afgreiðslan næsta fundar. „Íslendingarnir voru ekki tilbúnir nú en það þýðir ekkert sérstakt. Tilskipunin á að taka gildi í lok 2009. Vinnan við það gengur vel,“ hefur Dagbladet eftir Oda H. Sletnes, sendiherra Noregs. Ögmundur Jónasson heilbrigðis-ráðherra segir að málið sé viðamikið og þarfnist rækilegrar skoðunar. „Þetta er misskilningur hjá sendiherranum. Ísland er enn fullvalda ríki sem tekur eigin ákvarðanir á eigin forsendum. Við munum ekki komast að niðurstöðu samkvæmt forskrift frá Noregi eða öðrum. En Norðmenn geta andað rólega. Við viljum gefa okkur tíma til að skoða þetta nánar.“ Eiríkur Bergmann Einarsson, forstöðumaður Evrópuseturs Háskólans á Bifröst, segir að Íslendingar hafi ekki þá stöðu að geta breytt neinu í þjónustutilskipuninni. Þeir hafi lýst yfir að þeir ætli að samþykkja hana og því sé bara formsatriðið eftir. Stundum sé sagt að löndin hafi neitunarvald en því hafi aldrei verið beitt. „Hér er um pólitískar vöðvahnyklingar að ræða sem hafa engan annan tilgang,“ segir hann. „Augljóst er að VG tókst að stoppa þetta. Utanríkisráðherra hefur áður lýst yfir að það sé stefna stjórnvalda að leiða þessa tilskipun í lög. Það ber því vott um taugaveiklun í samstarfinu að sendiherra Íslands hafi stöðvað staðfestingu á tilskipun tíu mínútum fyrir kosningar. Á þessum tíma hefur VG eflaust talið sig hafa sterkari stöðu að kosningum loknum og geta haft eitthvað um þetta að segja en núna á maður von á að þetta verði staðfest.“ ghs@frettabladid.is þetta er misskilningur „Þetta er misskilningur,“ segir Ögmundur B. Jónasson heilbrigðisráðherra.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sjá meira