Innlent

Á von á þjóðaratkvæðagreiðslu innan þriggja mánaða

Gunnar Örn Jónsson skrifar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins Mynd/GVA

„Ég á alveg eins von á því að málið verði lagt í hendur þjóðarinnar innnan þriggja mánaða," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Vísi er hann var inntur eftir því hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB fari fram, ákveði þingið að samþykkja þingsályktunartillögu utanríkismálanefndar.

Eins og fram kom á Vísi fyrr í dag, afgreiddi utanríkismálanefnd þingsályktunartillögu um aðildarumsókn í ESB út úr nefndinni. Hart var tekist á í nefndinni út af tillögunni en allir stjórnarþingmenn í utanríkismálanefnd greiddu atkvæði með henni, þrátt fyrir miklar efasemdir nefndarmanna Vinstri Grænna. Bjarni Benediktsson á jafnvel von á því að þjóðaratkvæðagreiðsla um málið fari fram innan þriggja mánaða.

„Okkar afstaða er sú að ekki er hægt að styðja ríkisstjórn sem er klofin í málinu. Þingið er klofið í málinu og að okkar mati einsýnt að það hljóti að þurfa skýran vilja þjóðarinnar til að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Því viljum við að það fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali við Vísi.

Hann segir ennfremur að þar sem engin breið pólitísk samstaða sé um málið sé mikilvægt að þjóðin taki bindandi ákvörðun um þetta mikilvæga mál.

Bjarni segir að Vinstri Grænir séu algjörlega klofnir í málinu og í raun hafi utanríkismálanefnd klofnað í fimm parta. Sjónarmið meirihlutans, það er að segja ríkisstjórnarflokkanna annars vegar og Vinstri Grænna innbyrðis hins vegar og síðan sjónarmið stjórnarandstöðuflokkanna þriggja.




















Tengdar fréttir

Bjarni: Þjóðin mun ekki eiga síðasta orðið um ESB

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ljóst að þjóðin muni ekki fá að eiga síðasta orðið um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þetta kom fram í máli formannsins í umræðum á Alþingi í dag. Þar beindi hann fyrirspurn sinni til Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, en hann vildi vita hvaða þýðingu möguleg aðildarumsókn hafi í ljósi þess að lagt verði fram á næstu dögum frumvarp um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslur. Bjarni spurði auk þess hvort kæmi til álita að fram fari tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×