Varð að svæfa Sólmund Hólm 2. desember 2009 06:00 Gylfi Ægisson ásamt ævinsöguritara sínum Sólmundi Hólm Sólmundarsyni. fréttablaðið/anton „
Við vorum mjög góð við hann en það endaði með því að við urðum að láta svæfa greyið,“ segir tónlistarmaðurinn Gylfi Ægisson. Hann og Jóhanna kærastan hans hafa að undanförnu misst tvo kettlinga sem voru báðir skírðir í höfuðið á Sólmundi Hólm Sólmundarsyni, ævisöguritara Gylfa. Sá síðari, Sólmundur Hólm II. var svæfður vegna þess að hann var sérlega geðillur og klóraði fólk upp úr þurru en sá fyrri, Sólmundur Hólm Jr., varð fyrir bíl í Keflavík þar sem Gylfi á íbúð. „Jóhönnu langaði í kisu og vantaði nafn á hana. Þá segi ég við hana: „Af hverju gerirðu ekki eins og indíánarnir og lítur út um gluggann og skírir köttinn í höfuðið á því fyrsta sem þú sérð?“,“ segir Gylfi. „Þannig að hún leit út um eldhúsgluggann og það fyrsta sem hún sá var sólin. En af því að þetta var strákur gat hún ekki skírt hann Sól. Þá datt henni í hug, af því að Sóli var að skrifa bókina, að skíra hann Sóla. Þar með varð þetta Sólmundur Hólm Jr.“ Gylfi og Jóhanna létu ekki deigann síga þrátt fyrir dauða kattanna tveggja því sá þriðji, Sólmundur Hólm III. er nú kominn á heimilið og er ljúfur sem lamb. Ævisöguritarinn Sólmundur Hólm hefur þó enn ekki hitt nafna sinn, ekki frekar en hina tvo. Spilar það inn í að hann er með kattaofnæmi og reynir hvað hann getur að halda sig fjarri kattarkyninu. Gylfi segir það engu máli skipta: „Hann skal sko fá að halda á þessum , hann er svo góður.“ -fb
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira