Ákærður fyrir alvarleg kynferðisbrot - í fyrsta sinn í sögu unglingaheimila 29. september 2009 14:03
Búið er að gefa úr ákæru á hendur manni á fertugsaldri vegna alvarlegra kynferðisbrota gagnvart unglingsstúlkum á meðferðarheimilinu Árbót í Aðaldal. Starfsmaður slíks heimilis hefur aldrei áður verið ákærður fyrir slík brot í sögu unglingaheimila hér á landi. Maðurinn hafði áður verið kærður fyrir að misnota tvær unglingsstúlkur en ekki var ákært í málinu þar sem framburður þeirra stangaðist á. Maðurinn neitaði sök og var því málið fellt niður. Maðurinn var í kjölfarið fluttur á annað meðferðarheimili. Þar starfaði hann þangað til það var lagt niður. Maðurinn hóf svo aftur störf á meðferðarheimilinu í Aðaldal. Þá sakaði þriðja stúlkan hann um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi. Lögreglan hóf rannsókn. Að lokum var gefin út ákæra á hendur manninum. Maðurinn var ákærður fyrir að misnota tvær stúlkur. Ásökunum þeirra þriðju var vísað frá. Maðurinn hefur ekki áður verið dæmdur fyrir kynferðisbrot. „Þetta er í fyrsta skiptið sem ákæra er gefin út á hendur starfsmanns meðferðarheimilis hér á landi," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu. Hann segir það merkilegt og hugsanlega teikn um nýja tíma varðandi meðferðarheimili hér á landi. Það var lögreglan á Akureyri sem rannsakaði málið. Samkvæmt heimildum Vísis eru meint brot mannsins gagnvart stúlkunum alvarleg.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Sjá meira