Skuldavandi heimila er viðráðanlegur 29. september 2009 04:30 Stolt Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kveðst stolt af þeim árangri sem ríkisstjórn hennar hefur náð á átta mánaða starfstíma sínum.
Útfærsla endanlegra aðgerða til að koma til móts við þá sem eiga í mestum skuldavanda er á lokastigi. Er aðgerðunum ætlað að gilda um alla, sama hvar þeir skulda og sama hverrar tegundar lán þeirra eru. Þetta kom fram í máli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar á laugardag. Sagði hún aðgerðirnar tryggja bæði húsnæðisöryggi fólks og að skuldsett heimili verði ekki föst í skuldafjötrum um ókomna tíð. „Allar kannanir sýna að vandinn er viðráðanlegur og í raun séu það um tuttugu prósent heimila sem þurfi nú á róttækum aðgerðum að halda,“ sagði Jóhanna. Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir að stoppa í 180 milljarða króna halla á fjórum árum. Sagði Jóhanna ráðgert að hallinn yrði tæpum 100 milljörðum minni í lok næsta árs. Því verði náð fram með niðurskurði, sparnaði, uppstokkun ríkiskerfisins og réttlátari skattastefnu en verið hafi. Í undirbúningi eru stórframkvæmdir í orkumálum, vegamálum og byggingariðnaði, meðal annars með aðkomu lífeyrissjóða. Jóhanna gat um ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því á föstudag um að greiða götu þess að nýr Landspítali risi. Við það skapast minnst 800 störf. Nefndi hún líka Búðarhálsvirkjun, stækkun Straumsvíkurálversins, byggingu álversins í Helguvík, Suðurlandsveg, gagnaver og virkjun jarðhita sem verkefni til uppbyggingar atvinnulífs. Hún sagði líka margt í bígerð til að draga úr umsvifum hins opinbera og nefndi sameiningu stofnana og embætta. Þá upplýsti Jóhanna að hún hefði farið fram á að skilanefndir bankanna greindu opinberlega frá störfum sínum. Sagði hún marga hafa áhyggjur af því hvernig staðið væri að endurskipulagningu á skuldum fyrirtækja, hver þeirra yrðu knúin í þrot og hverjum hjálpað með skuldbreytingum og afskriftum. Allt þyrfti að vera á hreinu í þessum efnum í nýju og betra samfélagi.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Sjá meira