Aldrei fleiri kettir í Kattholti 29. september 2009 06:00 Ófremdarástand í kattholti Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands, segir ófremdarástand ríkja í Kattholti. Þangað hafi aldrei komið jafnmargar kisur og á undanförnum vikum. Fréttablaðið/GVA
Ófremdarástand er að skapast í Kattholti sem Kattavinafélag Íslands rekur í Stangarhyl. Fólk virðist vera að losa sig við kisurnar í kreppunni. „Frá upphafi, í þau átján ár sem Kattholt hefur verið starfrækt, hafa aldrei fleiri kisur verið hérna hjá okkur,“ segir Sigríður Heiðberg, formaður Kattavinafélags Íslands sem rekur Kattholt í Stangarhyl. Henni telst til að yfir 160 kisur dveljist nú í Kattholti og telur að kreppan sé fyrir alvöru farin að hafa áhrif á örlög katta um þessar mundir. „Fólk er hreinlega að losa sig við kettina þannig að þetta er bara skelfilegt ástand.“ Mörgum lógað Sumar kisurnar fá ekki ný heimili og eigendur þeirra finnast ekki. Þá er lítið annað að gera en að lóga þeim. Kettirnir eiga sér sumir einhverja von; stundum finnast eigendurnir og stundum fá þeir ný heimili. Í sumum tilvikum er þó ekkert annað í stöðunni en að aflífa þá. „Svo er það þannig að þegar þeir koma hingað inn verður svo mikið álag á taugakerfið, varnarkerfið brotnar niður og þeir fá kvef en það er vandamál sem við ráðum hreinlega ekkert við eins og staðan er í dag,“ útskýrir Sigríður og því ljóst að sannkallað ófremdarástand er að skapast í Kattholti um þessar mundir. Sigríður segir Kattavinafélagið skuldbundið til að taka móti þessum heimilislausu dýrum. „Regla númer eitt er að koma þeim heim, númer tvö er að finna fyrir þá ný heimili,“ útskýrir Sigríður, sem kallar eftir harðari reglum um kattarhald. „Oft eru þessi dýr örmerkt en eigendurnir koma ekki til að vitja þeirra.“ - fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira