Nefndin hlustaði á sumt en annað ekki 2. mars 2009 05:00 Seðlabankinn og Alþingi Viðskiptanefnd fjallaði um seðlabankafrumvarpið á níu fundum og fékk á þá hátt í 30 gesti auk fjölda skriflegra umsagna. Umræður í þinginu stóðu í átján klukkustundir. fréttablaðið/pjetur „
Fyrst vil ég minna á að upphafleg lagasetning um Seðlabankann og allar veigamiklar breytingar á lögunum síðan hafa verið rækilega undirbúnar og um þær hefur því ætið náðst þverpólitísk samstaða á þingi," sagði Jóhannes Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóri, í áliti sínu til viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp ríkisstjórnarinnar um bankann. Jóhannes varð seðlabankastjóri við stofnun bankans 1961 og gegndi embætti til 1993. Jóhannes sagði að sér virtist sérstaklega mikilvægt að fá umsögn Seðlabanka Evrópu um frumvarpið en meirihluti viðskiptanefndar hafnaði boði um slíkt. Þá sagði hann margt mæla með að tveir aðstoðarbankastjórar yrðu við bankann og varaði við að peningastefnunefnd yrði stofnuð áður en sem víðtækastra gagna um reynslu annarra þjóða af slíku fyrirkomulagi yrði aflað. Til hvorugs var tekið tillit við lagasetninguna. Margháttaðar breytingar urðu á frumvarpinu þar til það varð að lögum. Á þriðja tug gesta komu fyrir viðskiptanefnd þingsins og henni bárust um tuttugu umsagnir. Samtök atvinnulífsins voru harðorð í sinni umsögn og sögðu frumvarpið lagt fram án þess vandaða undirbúnings og samráðs sem mælt væri fyrir um í leiðbeiningum forsætisráðuneytisins. Þá sagði: „Í ljósi þess að peningamálastefna Seðlabankans hefur beðið skipbrot og Seðlabankinn er rúinn trausti og varð gjaldþrota er mikilvægt að allar breytingar stuðli að endurvakningu trausts á Seðlabankanum og efnahagsstefnu stjórnvalda." Því lögðu samtökin til að fram færi ítarleg úttekt á stefnu og skipulagi bankans. Þá vildu þau að bankaráð eða sérstök ráðninganefnd réði í stöðu bankastjóra en ekki forsætisráðherra. Viðskipta- og raunvísindadeild Háskólans á Akureyri lagði til að staða seðlabankastjóra yrði auglýst á alþjóðlegum vettvangi. Starfsmenn Viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík vildu að í lögunum yrði tiltekið í bráðabirgðaákvæði að peningastefnan yrði endurskoðuð. Þeir töldu jafnframt óheppilegt - í ljósi reynslunnar - að ekki væri uppsagnarákvæði um bankastjóra í lögunum. Þá gerðu margir umsegjendur athugasemdir við hvernig standa ætti að skipan í peningastefnunefnd bankans og var í meginatriðum tekið undir sjónarmið þeirra. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira