Innlent

Dagpeningar ríkisstarfsmanna lækka

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið að lækka dagpeninga ríkisstarfsmanna á ferðalögum erlendis um rúmlega 10%. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafði áður beint þeim tilmælum til nefndarinnar að greiðslurnar yrðu lækkaðar. Dagpeningar skiptast í greiðslur vegna gistingar og annars kostnaðar.

Greiðslur vegna almennra dagpeninga skiptast í fjóra flokka. Greiðslur í lægsta flokknum lækka úr tæpum 38 þúsund krónum í 34 þúsund krónur.

Dýrasti flokkurinn inniheldur ferðir til Moskvu, New York borgar, Singapúr, Tókýó eða Washington. Dagpeningar vegna gistingar og annars kostnað vegna þeirra lækka úr rúmum 57 þúsund krónum í 51 þúsund krónur á dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×