Áfall fyrir áform stjórnvalda um endurreisn 18. júlí 2009 19:31
Synjun Evrópska fjárfestingarbankans á láni til virkjanaframkvæmda Orkuveitu Reykjavíkur er áfall fyrir áform stjórnvalda um endurreisn efnahagslífsins, að mati stjórnarformanns Orkuveitunnar. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir hins vegar að Orkuveitan megi ekki láta máta sig; - hún verði að leita lána annarsstaðar. Orkuveitan áformaði að hefja eftir áramót framkvæmdir við Hverahlíðarvirkjun á Hellisheiði til að mæta orkuþörf fyrir annan áfanga álvers Norðuráls í Helguvík. Evrópski fjárfestingarbankinn tilkynnti hins vegar í vikunni að hann myndi ekki afgreiða 30 milljarða króna lán til verkefnisins vegna óvissu í efnahagsmálum Íslands. Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, segir að þessi synjun sé ekki síst slæm vegna þess að ein af forsendum nýgerðs stöðugleikasáttmála hafi verið sú að orkuframkvæmdir hæfust. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að þótt í þessu tafli sé nú búið að segja skák á Orkuveituna megi hún ekki láta máta sig. Menn megi ekki gefast upp heldur verði að leita lána annarsstaðar.
Mest lesið Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Innlent Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Innlent Ofbeldi í garð fangavarða eykst Innlent Dettifoss komið til hafnar Innlent Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Innlent Þinglokasamningur í höfn Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Fleiri fréttir Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Alvarlega særður eftir hnífstunguárás Mennirnir enn í haldi lögreglu Staðan á Alþingi og refsilaus vændiskaup Leggja til að veiðigjaldið verði innleitt í skrefum Hvaðan kemur „kjarnorkuákvæðið“? Þungt haldinn eftir árekstur á Hafnarfjarðarvegi Einn handtekinn eftir stunguárás Fimm handteknir eftir að skoti var hleypt af „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Sjá meira