Innganga Íslands í ESB hefði ekki áhrif í Noregi 12. janúar 2009 19:30 Åslaug Haga MYND/Dagsavisen
Talsmaður norska Miðflokksins í utanríkismálum hefur ekki trú á því að það hefði mikil áhrif í Noregi, ef Ísland yrði meðlimur í Evrópusambandinu. Þriggja manna sendinefnd flokksins fundaði með forsætisráðherra í dag um stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Miðflokkurinn, eða Sentalpartiet eins og flokkurinn heitir á norsku, er eins konar Framsóknarflokkur þeirra Norðmanna. Flokkurinn myndar ríkisstjórn með Sósíaldemókrötum og er algerlega andvígur inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Þriggja manna sendinefnd flokksins er stödd hér á landi og fundaði með Geir H. Haarde forsætisráðherra í morgun. Åslaug Haga, talsmaður Miðflokksins í utanríkismálum, segir að með heimsókn sinni til landsins sé flokkurinn ekki að tala gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu. Sendinefndin sé að fræðast um stjórnmál og aðstæður hér á landi, þar á meðal spurningna um aðild. Það sé þó íslenska þjóðin sem taki endanlega ákvörðun um hugsanlega aðild. Margir hafa fullyrt að ef Íslendingar gengju í Evrópusambandið myndaðist þrýstingur í Noregi til að gera slíkt og hið sama. Åslaug tekur ekki undir það og telur að aðild Íslands myndi ekki hafa bein áhrif á afstöðuna í Noregi. Hugsanleg aðild myndi þó að sjálfsögðu leiða til meiri umræðu. Åslaug minnir á að norska þjóðin hafi í tvígang, 1972 og 1994, hafnað aðild að Evrópusambandinu þótt öll stjórnmálaelíta landsins hafi mælt með aðild. Innganga Svía og Finna hafi ekki breytt almenningsálitinu.
Mest lesið Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Erlent Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Veður Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Innlent Fleiri fréttir Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Sjá meira