Tryggður en fær tjónið ekki bætt 21. júlí 2009 06:00 Kristjan Zaklynsky segir það vera mikinn missi að hafa tapað tölvunni og lofar fundarlaunum komi hún í leitirnar.
Listamaðurinn Kristjan Zaklynsky varð fyrir barðinu á óprúttnum aðila um helgina þegar tölvunni hans var rænt af honum á skyndibitastað í miðbæ Reykjavíkur. „Ég og kærasta mín vorum að fara að borga fyrir pitsusneiðar sem við höfðum keypt þegar einhver rífur af mér tölvutöskuna mína og hleypur burt. Við fengum að skoða upptökur úr öryggismyndavél staðarins en þar sést ekki í þjófinn heldur,“ segir Kristjan. Tölvan var af gerðinni MacBook Pro, með fimmtán tommu skjá og var búið að líma Gogoyoko-límmiða yfir eplið, vörumerki framleiðandans. Tjónið er talsvert því í tölvutöskunni var einnig harður diskur og myndavél. „Harði diskurinn og myndavélin mín voru einnig í töskunni þannig að öll vinna mín síðustu tvö árin er að mestu horfin, en meðal þess var tónlistarmyndband fyrir Pál Óskar, tónlist sem ég hef samið með hljómsveitinni Company B og teikningar sem ég var að vinna fyrir nokkrar auglýsingastofur.“ Kristjan segist vera tryggður en að hann fái tjónið ekki bætt þar sem honum var hvorki hótað af þjófnum né hlaut líkamleg meiðsl. „Ég er bæði með heimilistryggingu og tækjatryggingu hjá TM, en þeir segjast ekki bæta tjón sem þetta nema að mér hafi verið hótað eða ef ráðist hafi verið á mig, sem er bæði skrítið og skítt. Starfsmaðurinn sem afgreiddi okkur sagði einnig að þau fengju mörg sambærileg mál inn til sín en að þau séu sjaldan bætt.“ Kristjan, sem flytur til New York eftir mánuð, vonast til að tölvan komi í leitirnar og hefur lofað fundarlaunum endurheimti hann gripinn. „Það er hægt að ná í mig í síma 869-6844 eða senda mér póst á kristjanz@gmail.com. Ég væri mjög þakklátur fengi ég tölvuna aftur,“ segir Kristjan að lokum. - sm
Mest lesið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira