Hrós frá kóngi söngleikjanna 21. júlí 2009 06:45 Upp með sér Katrín Ýr var ánægð með gagnrýni Tims Rice á söng hennar. fréttablaðið/GVA „
Hann líkti mér við Yvonne Elliman, sem söng lagið upphaflega. Hann sagði að ég minnti hann á hana og hljómaði eiginlega alveg eins og hún, sem mér fannst geðveikt,“ segir Katrín Ýr Óskarsdóttir söngkona um masterclass námskeið sem hún tók hjá Tim Rice, einum frægasta söngleikjahöfundi allra tíma. Katrín söng lagið I Don‘t Know How to Love Him, úr Jesus Christ Superstar sem Rice samdi ásamt Andrew Lloyd Webber. Hún segir söngleikinn í uppáhaldi. „Ég þurfti að sannfæra kennarann minn um að fá að syngja þetta lag, ekki eitthvað annað. Hann kom upp í skóla til að segja frá lífi sínu og hvernig hann hefði komist áfram í bransanum. Við vorum nokkur sem fengum að syngja fyrir hann og fá tilsögn frá honum. Hann er rosalega jarðbundinn miðað við hvað hann er frægur.“ Katrín Ýr stundar nám í Institute of Contemporary Music Performance og á ár eftir. Meðfram námi hefur hún kennt og sungið með ýmsum böndum, auk þess að gera eigin tónlist. „Það er búið að vera frekar mikið að gera í sumar. Ég er í einhverjum fimm eða sex hljómsveitum í augnablikinu, ég kvarta ekki.“ Áhugasamir Íslendingar í London geta kíkt á Katrínu á The Good Ship í Kilburn átjánda september. Er stefnan sett á söngleikina? „Ég ætlaði í söngleikjanám, áður en ég fór í námið sem ég er í núna. Ég veit það ekki. Ég er búin að vera að vinna með stelpum sem hafa unnið mikið á West End. Ég hef verið að spjalla við þær og önnur ætlar að láta mig vita ef hún veit af einhverjum prufum, þannig að það er aldrei að vita. Það væri ekkert leiðinlegt, þó ég sé meira í popp- og rokk-geiranum.“ -kbs
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira