Leituðu til ráðherra til að sækja bráðkvaddan mann 24. ágúst 2009 04:00 Flugtími stórrar björgunarþyrlu kostar 700 þúsund krónur. Leiguþyrla sem sótti látinn mann á Herðubreið kostar mun minna.fréttablaðið/stefán
Björgunarsveitarmenn á Húsavík fullyrða að Landhelgisgæslan hafi hafnað beiðni þeirra um að þyrla sækti lík manns sem lést í fjallgöngu á fjallið Herðubreið. Svæðisstjóri björgunarsveitarinnar leitaði til dómsmálaráðherra og var þyrla frá Norðurflugi leigð til að ná í lík mannsins. Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir að aldrei hafi annað staðið til en að sækja líkið en ódýrari kostur hafi verið valinn en að senda stóra björgunarþyrlu. Maðurinn sem lést var í hópi göngufólks á fjallinu. Neyðarkall barst björgunarsveitum um hádegisbilið á föstudag og lagði björgunarsveitin Strákur í Mývatnssveit þegar af stað. Jafnframt var óskað eftir þyrlu, sem var sett í viðbragðsstöðu. Stuttu síðar kom í ljós að maðurinn var látinn, samkvæmt úrskurði læknis sem í gönguhópnum var. Guðmundur Salómonsson, svæðisstjóri björgunarsveitarinnar á Húsavík, segir að Landhelgisgæslan (LHG) hafi þverneitað að senda þyrlu þegar ljóst var að maðurinn var látinn - sú skýring hafi verið gefin að of kostnaðarsamt væri að senda þyrlu. Hafði hann samband við Rögnu Árnadóttur dómsmálaráðherra sem hafði samband við LHG. Að sögn Guðmundar varð símtal hans til þess að LHG leigði þyrlu frá Norðurflugi sem sótti líkið á fjallið. „Það átti ekki að senda þyrlu eftir að í ljós kom að maðurinn var látinn og með það vorum við mjög óhress. Ég talaði við ráðherra, sem bar árangur." Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, hafnar fullyrðingum um að ekki hafi átt að senda þyrlu. „Við hins vegar gerðum það á haganlegri máta en að senda stóra þyrlu. Þetta var unnið í fullu samráði við slysavarnafélagið Landsbjörg." Georg bendir á að með því að senda minni þyrlu hafi sparast milljónir króna. Hver flugtími stóru Super Pumu-þyrlu Landhelgisgæslunnar kostar 700 þúsund krónur en þyrlunnar sem sótti líkið 180 þúsund krónur. Flugið fram og til baka frá Reykjavík hefði tekið um sex klukkustundir, að sögn Georgs. Guðmundur vill koma því skýrt á framfæri að ósk um aðstoð þyrlu hafi komið til vegna þeirrar hættu sem björgunarsveitarmönnum stafar af því að færa líkið til byggða ofan af fjallinu. Til verksins hefði þurft allt að 50 manns í leiðangur af þessu tagi, sem tæki upp undir sólarhring. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Undanþága á borði en ekki í orði Afnema fyrirhuguð byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Sjá meira