Framleiddi plötu í tilefni stórafmælis foreldra sinna 24. ágúst 2009 03:30 Sigríður Thorlacius, Sigurður Guðmundsson og félagar í Heiðurspiltum syngja lög af plötunni í afmæli Geirs Zoega. „
Ég er búin að fylgjast með Sigríði Thorlacius í nokkur ár og langaði að gera eitthvað skemmtilegt með henni,“ segir Ragnhildur Zoega, verkefnastjóri Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins. Hún gerði sér lítið fyrir og fékk Sigríði, söngkonu Hjaltalíns, og hljómsveitina Heiðurspilta til að taka upp plötu með lögum Jóns Múla Árnasonar í tilefni stórafmælis foreldra sinna, Sigríðar og Geirs Zoega. Tveir af meðlimum Heiðurspilta eru þeir Sigurður Guðmundsson úr Hjálmum og Guðmundur Óskar Guðmundsson úr Hjaltalín og því ljóst að engir aukvisar eru þar á ferðinni. „Pabbi er mikill djassgeggjari og er hrifinn af Jóni Múla. Þá vaknaði hugmyndin að gera eitthvað skemmtilegt með þeim,“ segir Ragnhildur, sem þekkir Sigríði í gegnum dóttur sína. Einnig hefur hún fengið Sigríði til að syngja á ráðstefnum fyrir erlenda gesti tengdum starfi sínu. Foreldrar Ragnhildar fengu fyrstu eintökin af plötunni afhent í áttræðisafmæli pabba hennar síðastliðinn fimmtudag og að sjálfsögðu tóku Sigríður og Heiðurspiltarnir lagið við góðar undirtektir. Foreldrarnir, sem höfðu ekki hugmynd um verkefnið, voru himinlifandi. Sömuleiðis þótti þeim gaman að sjá gamlar partímyndir af sjálfum sér frá sjötta áratugnum framan á plötunni. „Ég var svolítið smeyk um að þau yrðu ekki glöð en svo var þetta bara mjög skemmtilegt,“ segir Ragnhildur. Platan sjálf kemur í búðir 9. september, sem er einmitt 75 ára afmælisdagur móður hennar. Þá verða haldnir útgáfutónleikar í Austurbæ. Ragnhildur kostaði sjálf gerð plötunnar á vegum fyrirtækis síns Skrjóða en útgáfufyrirtækið Borgin annast dreifingu. Allur ágóði rennur til góðgerðarmála. „Þetta er mitt fyrsta verkefni. Það er mjög skemmtilegt að vinna með svona frábærum listamönnum,“ segir hún. freyr@frettabladid.is ragnhildur zoega Ragnhildur framleiddi plötu og gaf foreldrum sínum í afmælisgjöf. fréttablaðið/heiða
Mest lesið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið Það er komið gó hjá Bó Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Svala minnist pabba síns Lífið Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist Tekur við af dóttur kærastans Lífið Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Lífið Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Tónlist Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Sjá meira
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist