Nýjar áherslur í eyðimörk 20. ágúst 2009 02:00 Turner og félagar í Arctic Monkeys gefa á mánudaginn út sína þriðju plötu, Humbug.nordicphotos/getty
Þriðja plata ensku hljómsveitarinnar Arctic Monkeys, Humbug, kemur út á mánudaginn. Hennar hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda er sveitin talin ein sú efnilegasta í rokkinu í dag. Síðustu tvær plötur Arctic Monkeys, Whatever People Say I Am, That’s What I’m Not og Favourite Worst Nightmare, höfðu yfir sér ungæðislegan blæ þar sem krafturinn var í fyrirrúmi. Á Humbug kveður við nokkuð breyttan og fágaðri tón. Hljómsveitin réð Josh Homme, forsprakka eyðimerkurrokkaranna í Queens of the Stone Age og sömuleiðis liðsmann Eagles of Death Metal, sem upptökustjóra í tilraun til að breyta aðeins um áherslur. Strákarnir ferðuðust alla leið frá Sheffield í eyðimörkina í Kaliforníu þar sem upptökurnar fóru fram í Rancho De La Luna-hljóðverinu. „Hljóðverið var heima hjá Dave Catching úr Eagles of Death Metal. Hann bjó þarna á meðan við vorum að taka upp og svaf þar allar nætur. Þetta var dálítið skrítið en þetta virkaði,“ sagði trommarinn Matt Helders í viðtali við tímaritið Clash. Söngvarinn Alex Turner segir að gítarleikurinn sé meira áberandi á Humbug en áður. „Josh hvatti okkur til að spila gítarsóló. Það er nokkuð sem við höfum ekki lagt mikla áherslu á en hann og aðstoðarmaðurinn hans, Alain Johannes, voru ótrúlegir. Alain er örugglega besti gítarleikari sem ég hef séð og þeir voru mjög hvetjandi,“ sagði hann. Homme hvatti strákana til að hlusta á hljómsveitina 13th Floor Elevators með Roky Erickson í fararbroddi, en hún er í miklu uppáhaldi hjá Primal Scream. Einnig hlustuðu þeir mikið á Jimi Hendrix og Cream í von um að ná fram rétta hljóminum. Strákarnir yfirgáfu þó ekki algjörlega rætur sínar við gerð plötunnar því eftir að tökum lauk í Kaliforníu héldu þær áfram í New York þar sem James Ford, sem tók upp fyrstu tvær plöturnar, var við stjórnvölinn. Svo virðist sem hinn breytti hljómur Arctic Monkeys, sem sumir gagnrýnendur segja að sé þroskaður, hafi hitt í mark því Humbug hefur fengið prýðilega dóma að undanförnu. Til að mynda fékk hún fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá hinum virtu tímaritum Q, Mojo og Rolling Stone. Fram undan hjá strákunum er spilamennska á Reading/Leeds-hátíðunum á Englandi í lok ágúst, þar sem Homme og félagar í Eagles of Death Metal verða einnig á meðal gesta. Eftir það er ferðinni heitið í tónleikaferð til Bandaríkjanna. freyr@frettabladid
Mest lesið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni Lífið Fleiri fréttir Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sumarlegt grillsalat að hætti Hildar Rutar Sjá meira