Ræddu mögulegt samstarf 23. febrúar 2009 03:30 Samstarf Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir fulla þörf á að hagræða í blaðaútgáfu þar sem rekstrargrundvöllur sé afar erfiður.Fréttablaðið/Vilhelm
Ástralski fjárfestirinn Steve Cosser, sem vill kaupa útgáfufélag Morgunblaðsins, fundaði með Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, stærsta hluthafa 365 miðla, og forstjóra félagsins í gær. Á fundinum var rætt um möguleika á samstarfi á sviði prentunar og dreifingar. Cosser er annar tveggja aðila sem nú keppast um að fá að kaupa Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins. Hann hafði áhuga á að fara yfir samninga um prentun og dreifingu sem gerðir voru milli Árvakurs og 365 miðla, útgáfufélags Fréttablaðsins, segir Ari Edwald, forstjóri 365 miðla. Samkeppniseftirlitið setti ströng skilyrði fyrir slíku samstarfi, meðal annars um stjórnunarlegan aðskilnað og fleiri atriði. Ari segir að þau skilyrði hefðu þýtt að hagræði af samstarfinu yrði of lítið, og því varð ekkert úr samstarfinu í bili. Ari segir Cosser tvímælalaust opinn fyrir samstarfi, fái hann að kaupa Árvakur. Forsvarsmenn 365 miðla séu einnig afar áhugasamir um slíka samvinnu. Við blasi að rekstrargrundvöllur blaðaútgáfu sé svo erfiður að full þörf sé á að reyna að hagræða eins og hægt sé í rekstrinum. Ari segir að ekki hafi verið fundað með Óskari Magnússyni, sem fer fyrir hinum hópnum sem vill eignast Morgunblaðið, um mögulegt samstarf. Óskar þekki væntanlega skilyrði Samkeppniseftirlitsins ágætlega. - bj
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira