Innlent

Björgvin G. skilur vaxtaákvörðunina

Frá Alþingi Vonbrigðum og hryggð var lýst á þingi í gær. fréttablaðið/vilhelm
Frá Alþingi Vonbrigðum og hryggð var lýst á þingi í gær. fréttablaðið/vilhelm

Þverpólitísk vonbrigði yfir lítilli stýrivaxtalækkun komu fram á Alþingi í gær. Þingmenn allra flokka – utan Borgarahreyfingar­innar – lýstu sárum vonbrigðum með að vextirnir hefðu aðeins lækkað í tólf prósent.

Stjórnarandstæðingar stóðu klárir á ástæðunni: ríkisstjórnin hefði ekki tekið á ríkisfjármálunum.

Illugi Gunnarsson, Sjálfstæðisflokki, sagði að auk þess að hafa ekki kynnt raunhæfa áætlun í ríkis­fjármálum hefðu ríkisstjórninni verið mislagðar hendur í að koma saman bankakerfinu. Tryggvi Þór Herbertsson kallaði hátt vaxtastig aðgerðaleysiskostnað og Pétur Blöndal sagði ákvörðunina hafa valdið sér hryggð.

Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki, sagði ákvörðunina áfall og að ríkisstjórnin væri að bregðast. Birkir J. Jónsson sagði ástandið óviðunandi og Höskuldur Þórhallsson sagði lægri vexti koma öllum til góða.

Björgvin G. Sigurðsson, Samfylkingunni, sagði ófært að lækka vexti á kostnað gengisstöðugleikans og þar sem gengið hefði ekki styrkst væri varfærnisleg vaxtalækkun skiljanleg.

Árni Þór Sigurðsson, VG, lýsti vonbrigðum með litla lækkun en taldi málflutning stjórnar­andstæðinga ómaklegan. Við værum að súpa seyðið af efnahagshruninu, hruni frjálshyggjunnar og slæmri efnahagsráðgjöf fyrri ríkis­stjórnar. - bþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×