Innlent

Lögreglan minnir knattspyrnuáhugamenn á að leggja löglega

MYND/Stefán

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Lögreglan vekur athygli á málinu núna vegna landsleiks Íslendinga og Hollendinga sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld.

„Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi svo aðeins tvær götur séu nefndar," segir í tilkynningu.

„Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×