Innlent

Byrjum að borga eftir sjö ár

Í þeim samningum sem nú eru í sjónmáli í Icesave deilunni felst að vextirnir á lánum vegna skuldbindinga Íslands verða 5,5 prósent á ári. Ekki þarf að byrja að borga af láninu fyrr en eftir sjö ár en vextir reiknast af því á meðan. Skuldbindingarnar nema 650 milljörðum í heildina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er ljóst til hve langs tíma lánið er.

Málið var kynnt ríkisstjórninni í morgun og síðan kynnt í þingflokkum stjórnmálaflokkanna. Að því búnu var boðað til annars ríkisstjórnarfundar þar sem málið var rætt frekar. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa á þingi lýst mikilli óánægju með vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málinu og hvernig upplýsingum um málið hefur verið lekið í fjölmiðla á meðan hart er gengið að þingmönnum að halda trúnað í málinu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins krafðist þess meðal annars að leynd verði aflétt í málinu þannig að þingmenn geti rætt málið á opinskáan hátt.

Upphaflegu heimildir Vísis hermdu að um væri að ræða lán til sjö ára en það mun ekki vera rétt.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×