Innlent

Ók á girðingu eftir glæfraakstur

Betur fór en á horfðist þegar ökumaður bíls sem ók á ofsahraða vestur Miklubraut við brúna yfir Bústaðaveginn missti stjórn á bílnum og lenti á girðingu sem skilur akbrautirnar að. Bíllinn fór í gegnum girðinguna og stöðvaðist rétt áður en hann var kominn yfir á hinn vegarhelminginn. Ökumaður og farþegi stungu af eftir atvikið en lögregla hafði hendur í hári þeirra og eru þau bæði grunuð um ölvun eða neyslu annarra vímuefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×