Innlent

Niðurlægir milljarðamæring fyrir pólitískan stöðugleika

Oleg Derpaska var niðurlægður á almannafæri.
Oleg Derpaska var niðurlægður á almannafæri.

Vladimar Pútin náði nýjum hæðum í andstöðu sinin gagnvart olígörkum þegar hann skipaði milljarðamæringnum Oleg Derpaska til þess að fylgja sér til bæjarins Pikalevo. Þar var verskmiðju í eigu Oleg lokað í síðustu viku með þeim afleiðingum að verkamennirnir fengu ekki greidd launin sín.

Verkamennirnir brugðust ókvæða við og lokuðu öllum götum nálægt bænum sem gerði það að verkum að 250 mílna löng umferðateppa myndaðist.

Ráðamenn óttast mjög mikið hugsanlegan pólitískan óróa sem gæti fylgt kreppunni í Rússlandi. Í raun óttast þeir byltingu.

Fyrir framan bæjarbúa hundskammaði Pútin milljarðamæringin Oleg og líkti honum og undirmönnum hans við kakkalakka. Hann sagði að ef Oleg hefði einhverja sómatilfinningu þá myndi hann borga starfsmönnunum launin sem hann skuldaði þeim sem voru um 800 þúsund pund.

Rússnenskir fjölmiðlar og breskir sömuleiðis telja að Oleg hafi fylgt Pútin vegna þess að ráðmenn í Kreml hafi forðað honum frá gjaldþroti. Sjálfur var hann ríkasti Rússi heims þar til á síðasta ári þegar eignir hans féllu úr 17 milljörðum niður í 2 milljarða dollara.

Pútín lítur því svo á að Oleg skuldi sér og ríkinu að gangast undir opinbera niðurlægingu til þess að friða pólitískan óróa rússnenskra verkamanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×