Innlent

Fyrning nær til alls

Þór Sigfússon
Þór Sigfússon

„Miðað við það hvernig verið er að meðhöndla íslenskt atvinnulíf í vaxtamálum, haftamálum og varðandi fyrningarleið í sjávarútvegi þá sé ég ekki betur en fyrningarleið sé hugsuð fyrir allt íslenskt atvinnulíf“, sagði Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, á málþingi í Vestmannaeyjum í gær.

Þór sagði að í raun væri verið að fyrna allt íslenskt atvinnulíf og vitnaði til stýrivaxtalækkunar Seðlabankans í gær.

„Maður óttast að stefnt sé að því að setja íslensk fyrirtæki í þrot. Hugmyndin er sú að íslenskur einkarekstur hafi sýnt svo mikið ábyrgðarleysi á undan­förnum árum að það sé ástæða til að taka þetta fólk og setja það út af sakramentinu og setja nýtt fólk í staðinn. Fyrningarleiðin í sjávarútvegi er bara ein birtingarmynd þessa.“

Hann sagði að hugmynd um eignasýslufélag sem tæki yfir þjóðhagslega mikilvæg fyrirtæki væri að breytast í umfjöllun Alþingis og nú sé rætt um að taka yfir „skuldsett fyrirtæki“ sem í grunninn væri hugmynd um að leggja allt íslenskt atvinnulíf undir ríkið. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×