Innlent

ION GX leitar á Drekasvæðinu

Kristján Már Unnarsson skrifar
Olíuborpallur. Myndin tengist ekki fréttinni.
Olíuborpallur. Myndin tengist ekki fréttinni.

Orkustofnun veitti í dag bandaríska fyrirtækinu ION GX Technology leyfi til leitar að olíu og gasi á norðanverðu Drekasvæðinu út þetta ár.

Þetta þýðir að rannsóknarskip fyrirtækisins geta strax í sumar gert hljóðbylgjumælingar á svæðinu í þeim tilgangi að selja gögnin til olíufyrirtækja sem fá vinnsluleyfi og þannig flýtt fyrir því að borpallar verði sendir á Drekann.

Leitarleyfið er veitt að fengnum umsögnum frá umhverfisráðuneyti og sjávar- og landbúnaðarráðuneyti, og áhersla lögð á að fullt tillit sé tekið til fiskveiða á svæðinu við mælingarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×