Innlent

Skýrsla Hafró: Ýsuafli lækki um tæp 40%

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Hafrannsóknarstofnun leggur til að hámarksafli ýsu lækki um tæp 40%.
Hafrannsóknarstofnun leggur til að hámarksafli ýsu lækki um tæp 40%.

Hafrannsóknarstofnun leggur til að leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verði 150 þúsund tonn, sem er 10 þúsund tonnum minna en veiða má á yfirstandandi fiskveiðiári. Þá leggur stofnunin til að leyfilegur ýsuafli verði 57 þúsund tonn. Tillaga Hafró á síðasta ári var 83 þúsund tonn en aflamarkið var 93 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári. Slík lækkun nemur um 40%.

Þetta kemur fram í skýrslu sem Hafrannsóknarstofnun kynnti fyrir fjölmiðlum í hádeginu. Þar kemur fram að meðalþyngd þorsks hefur lækkað verulega á síðustu árum og er undir meðaltali í stofnmælingum. Meðalþyngdin hækkaði nokkuð í afla árið 2008.

Hvað ýsu varðar segir í skýrslunni að verulega sé farið að ganga á stofninn og þá sérstaklega stóra árganginn frá 2003.

Þá er einnig lagt til að hámarksafli ufsa verði 35 þúsund tonn miðað við 50 þúsund tonn fyrir yfirstandandi fiskveiðiár. Aflamark ufsa er í dag 65 þúsund tonn.

Lagt er til að hámarksafli Hrefnu og Langreyða verði 200 dýr í hvorum stofni fyrir sig.

Stofnunin leggur áherslu á að allur afli utan aflamarks verði frádreginn af heildaraflamarki áður en kemur til úthlutunar á grundvelli aflahlutdeildar. Gert er ráð fyrir að veiði utan kvóta nemi um sjö-tíu þúsund tonnum í þorski svo að strangt til tekið er það mat Hafrannsóknarstofnunnar að aflamark skuli vera á bilinu 140-143 þúsund tonn.

Sjávarútvegsráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um hvort hann fylgir loforði forvera síns og auki þorskkvótann í 160 þúsund tonn. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir tillögu Hafró vonbrigði en fagnar því að þorskstofninn virðist vera stækka.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×