Innlent

Icesave lánið er til 15 ára

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Icesave lánið á að vera fullgreitt eftir 15 ár.
Icesave lánið á að vera fullgreitt eftir 15 ár.
Skuldin sem ríkissjóður þarf að gangast í ábyrgð fyrir vegna Icesave reikninganna á að vera fullgreidd að fimmtán árum liðnum. Lánið nemur samkvæmt heimildum fréttastofu 640 milljörðum króna en byrjað verður að greiða af því eftir sjö ár. Lánskjörin er 5,5% vextir.

Næstu sjö árin mun andvirði eigna Landsbankans í Bretlandi, sem nú eru frystar, koma til lækkunnar á höfuðstól lánsins samhliða sölu þeirra. Það sem eftir stendur að sjö árum liðnum, ásamt vöxtum, mun verða greitt á átta árum.

Meðal þeirra eigna sem eiga koma á móti skuldinni eru útlán Landsbankans til meðalstórra fyrirtækja um allann heim sem hafa flest fjögurra til sjö ára líftíma.




Tengdar fréttir

Byrjum að borga eftir sjö ár

Í þeim samningum sem nú eru í sjónmáli í Icesave deilunni felst að vextirnir á lánum vegna skuldbindinga Íslands verða 5,5 prósent á ári. Ekki þarf að byrja að borga af láninu fyrr en eftir sjö ár en vextir reiknast af því á meðan. Skuldbindingarnar nema 650 milljörðum í heildina, samkvæmt heimildum fréttastofu. Ekki er ljóst til hve langs tíma lánið er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×