Ekki tekið tillit til áætlana stjórnvalda 5. júní 2009 04:00 Jóhanna Sigurðardóttir „En þó að þessi ákvörðun valdi vonbrigðum er ekkert sem heitir að gefast upp. Það er ekki valkostur,“ segir forsætisráðherra og kveðst bjartsýn á að stýrivextirnir verði lækkaðir umtalsvert í byrjun júlí og jafnvel fyrr.fréttablaðið/stefán „
Ég hafði vonast eftir meiri lækkun og það olli mér vonbrigðum að hún varð ekki meiri en þetta,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig. Jóhanna segir að nefndinni hafi verið ljós margvísleg áform stjórnvalda í ríkisfjármálum og ekkert hafi gefið henni tilefni til að ætla að ekki verði staðið við þau. Þá séu lánasamningar við Norðurlöndin, samningar um Icesave-málið og endurreisn bankakerfisins í farvatninu. Hún segist ekki líta svo á að lítil vaxtalækkun – öfugt við það sem vonast var eftir – sé áfellisdómur yfir verkum ríkisstjórnarinnar. Talsverð lækkun gengis krónunnar að undanförnu og verðbólguþrýstingur vegna þessa séu ástæður þessarar varfærnislegu ákvörðunar. Í næstu viku verði kynntar opinberlega þær efnahagsráðstafanir sem gripið verði til á þessu ári og þær muni renna styrkari stoðum undir gengið. „Nefndin hefur sagt að stýrivaxtalækkun verði ekki gerð á kostnað gengisins. Verðbólguþrýstingur er alvarlegur fyrir heimilin ekki síður en háir vextir.“ Jóhanna kveðst sannfærð um að þegar áðurtalin viðfangsefni verði komin í höfn muni stýrivextir lækka umtalsvert. Næsti formlegi vaxtaákvörðunardagur er 2. júlí en Jóhanna telur að peningastefnunefndin geti allt eins séð ástæðu til að ákvarða vaxtalækkun fyrir þann tíma. Hún hafi til þess heimild. Myndarleg vaxtalækkun var, að mati aðila vinnumarkaðarins, ein forsenda þess að stöðugleikasáttmáli næðist millum þeirra, með aðkomu stjórnvalda. Jóhanna segist vissulega hafa áhyggjur af því að vaxtaákvörðunin hafi óheppileg áhrif á viðræður þar um og kunni jafnvel að hleypa þeim upp. „Þær voru á góðu skriði og það hefði mjög slæm áhrif á efnahags- og atvinnulífið ef þeim yrði teflt í tvísýnu. En þó að þessi ákvörðun valdi vonbrigðum er ekkert sem heitir að gefast upp. Það er ekki valkostur. Allt miðar þetta í rétta átt en það kann að breytast ef menn fyllast vonleysi. Og til þess eru engar ástæður því ég er vongóð um að okkur takist það ætlunarverk okkar að stýra þessari skútu þannig að við sjáum fram á endurreisn efnahagslífsins.“ bjorn@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi Sjá meira