Innlent

Maður stungin á Akureyri

Frá vettvangi. Mynd/ akureyri.net
Frá vettvangi. Mynd/ akureyri.net

Maður var stunginn í húsi við Hafnarstræti á Akureyri nú á sjötta tímanum. Sjónarvottur sá mannin koma kjagandi út og var hann blóðugur en með meðvitund. Sjónarvotturinn hringdi í neyðarlínuna og komu þrír lögreglubílar og sjúkrabíll á vettvang. Frá þessu er greint á vefnum akureyri.net.

Maðurinn missti mikið blóð fyrir utan Hótel Hörpu og girti lögreglan svæðið af vegna rannsóknar málsins. Tveir menn voru færðir í lögreglubíl en öðrum þeirra var sleppt fljótlega. Seinni maðurinn var hins vegar færður í lögreglubíl eftir að maður frá sérsveitinni var kominn á staðinn og huldi sá maður höfuð sitt með teppi.

Lögreglan á Akureyri er búinn að afmarka svæðið þar sem hnífstungan átti sér stað. Búið er að loka Hafnarstræti suður við Bautann og við Hótel Kea.

Lögreglumenn á slysstað vilja ekkert segja. Tæknilið lögreglunnar er samt komið á vettvang og er farið að taka myndir.

Ekki er vitað um líðan mannsins sem var stunginn..

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×