Innlent

Olíufélögin gætu átt von á sektum vegna verðhækkana

Andri Ólafsson skrifar
Neytendastofa rannsakar verðhækkun olíufélaganna í liðinni viku. Félögin hækkuðu um leið og Alþingi samþykkti hækkun á bensínskatti, en sú hækkun átti ekki að leggjast á birgðir. Félögin hafa frest fram á föstudag til að skýra mál sitt.

Hækkunin á eftir að vega þungt í pyngjum landsmanna. Sérstaklega þeirra sem ætla að ferðast innanlands í sumar en það verður sífellt dýrara. Á fólksbíl sem eyðir 9 lítum á hundraðið komst maður á Kópasker fyrir 5000 kall árið 2005. Árið 2007 komst maður ekki nema á Tjörnes og ári síðar ekki nema á Akureyri. Eftir hækkanirnar í gær kemst meður inn í Varmahlíð. Það kostar svo 21.800 krónur að fara hringinn.

En það eru ekki allir á eitt sáttir við að hækkanirnar sem tóku gildi á föstudaginn hafi skilað sér inn í bensínverðið svona fljótt því hækkanirnar eiga ekki að hafa áhrif nema þegar varan er tollafgreidd. Neytendastofa hefur blandað sér í málið eftir að hafa fengið ábendingar frá almennigi. Þórunn Annar Árnadóttir, lögfræðingur hjá Neytendastofu, segir að olíufélögin hafi frest þangað til á föstudaginn til að útskýra sitt mál. Ef svörin eru ófullnægjandi gætu sektir beðið þeirra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×