Innlent

Lamin með glasi í höfuðið á skemmtistað

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kona á þrítugsaldri var flutt á sjúkrahús eftir að maður hafði barið hana í höfuðið með glasi á veitingastað á Akureyri í nótt. Konan var talsvert skorin í andliti. Lögreglan veit hver árásarmaðurinn er og er unnið að rannsókn málsins.

Þá voru tveir fluttir á sjúkrahús eftir að tvær bifreiðar rákust saman á Hamarstíg við Engimýri á Akureyri í gærkvöld. Bifreiðarnar eru mikið skemmdar en fólkið er ekki talið alvarlega slasað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×