Innlent

Dregur úr skjálftavirkni á Reykjanesskaga

Dregið hefur skjálftavirkninni á Reykjanesskaga í nótt og í morgun og telur Veðurstofan nú að hrinan sé að fjara út og minnkandi líkur séu á fleiri stórum skjálftum á svæðinu næstu daga.

Laust fyrir klukkan átta í morgun mældist skjálfti upp á 2,9 stig um níu kílómetra norðaustan Grindavíkur og er það stærsti skjálftinn á svæðinu frá því síðdegis í gær. Gunnar Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni, segir að í gærkvöldi hafi byrjað að draga úr virkninni og telur hann nú meiri líkur á að jarðskjálftahrinan sé að fjara út. Segir hann minnkandi líkur á skjálftum yfir fjögur stig en telur þó rétt að gera ráð fyrir að enn geti komið skjálftar allt að þremur stigum. Það hafi ekki gerst sem menn óttuðust að skjálftahrinan færði sig austar í átt að Kleifarvatni heldur hafi skjálftarnir haldið sig á svæðinu norðaustur af Grindavík þar sem stóri skjálftinn, upp á 4,7 stig, kom í fyrrakvöld.

Ein stærsta spurningin sem vaknar við hræringarnar er hvort þær hafa áhrif á rekstur jarðhitavirkjana, en tvær stórar virkjanir eru nærri upptakasvæði skjálftanna, í Svartsengi og á Reykjanesi. Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku, sagði í morgun að þeir hefðu hvorki séð breytingar á jarðhitasvæðum né holutoppþrýstingi og allt virtist með eðlilegum hætti. Hræringarnar gætu hins vegar komið orkuverunum til góða því Albert bendir á að þegar sprungur gliðna aukist streymi jarðvarma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×