Innlent

Á 180 kílómetra hraða í Öxnadal

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan að störfum við hraðamælingar. Mynd/ Hilli
Lögreglan að störfum við hraðamælingar. Mynd/ Hilli
Ökumaður var mældur á 180 kílómetra hraða á klukkustund í Öxnadal á föstudagskvöldið. Mál þessa ökumanns var tekið fyrir strax daginn eftir og hann sviptur ökuréttindum til bráðabirgða en endanleg afgreiðsla fer fram síðar.

Lögreglan á Akureyri segir að þessi ökumaður hafi enga skýringu getað gefið á háttarlagi sínu í umrætt sinn. Fleiri ökumenn voru myndaðir á of miklum hraða og mega þeir eiga von á bréfi í pósti einhvern næstu daga þar sem þeim er kynnt niðurstaða mælingarinnar sem og upphæð sekta sem almennt er á bilinu 10 - 30 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×