Innlent

Snæfellsneshringurinn malbikaður

Frá Snæfellsnesi. Mynd/ Stefán.
Frá Snæfellsnesi. Mynd/ Stefán.
Malbikaður hringvegur er nú kominn alla leið umhverfis Snæfellsnes eftir að síðasti malarkaflinn undir Jökli var lagður bundnu slitlagi.

Vegirnir á Snæfellsnesi voru forðum sagðir þeir verstu á landinu en nú hafa orðið alger umskipti. Með síðasta kaflanum yst á nesinu er kominn malbikaður hringur um Vatnaleið og út fyrir Jökul. Þá klárast stór kafli á Fróðárheiði í haust.

Það þótti mikið átak þegar torfærum eins og Ólafsvíkurenni og Búlandshöfða var rutt úr vegi og brýrnar yfir Hraunsfjörð og Kolgrafarfjörð ásamt Vatnaleiðinni þóttu bylting. Vegfarendur eru að verða lausir við þjóðvegarykið og holurnar og geta fyrir vikið notið stórbrotins landslags betur en áður.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×