Enginn ráðherra ætlar að funda með Dalai Lama Guðjón Helgason skrifar 31. maí 2009 18:59
Fjármálaráðherra segir að engin samræmd stefna hafi verið mörkuð varðandi það hvort ráðherrar í ríkisstjórn Íslands fundi með Dalai Lama meðan á heimsókn hans á Íslandi standi. Hverjum ráðherra sé í sjálfsvald sett hvort hann vilji hitta hinn útlæg trúarleiðtoga Tíbeta. Enginn ráðherra hefur óskað eftir fundi með honum. Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, hefur verið í útlegð í hálfa öld. Hann kemur til Íslands rétt fyrir klukkan níu í kvöld frá Kaupmannahöfn þar sem heimsókn hans hefur valdið deilum sökum harkalegra viðbragða Kínverja við fundi hans með Lars Lökke Rasmussen forsætisráðherra og Per Stig Möller utanríkisráðherra á föstudaginn. Kínverjar hafa sagt fundinn grafa undan góðu vinasambandi þjóðanna. Kínverjar andmæla öllum fundum tíbetska trúarleiðtogans með fulltrúum erlendra stjórnvalda sökum þess að stefna Dalai Lama sé að skilja Tíbet frá Kína. Lökke Rasmussen sagðist aðeins hafa gert það sama og fyrriennari hans Anders Fogh Rasmussen sem fundaði með Dalai Lama í Danmörku 2003. Stjórnarandstaðan í Danaveldi tekur undir með forsætisráðherranum. „Við berum mikla virðingu fyrir Kína. Engu að síður tel ég að Kína þurfi líka að bera mikla virðingu fyrir Danmörku. Í Danmörku viljum við hitta fólk og tala við fólk. Í stað þess að senda reiðibréf til ríkisstjórnar Danmerkur tel ég að Kínverjarnir ættu kannski sjálfir að funda með Dalai Lama," segir Helle Thorning Schmidt, formaður Jafnaðarmanna. Hér á Íslandi virðist enginn ráðherra ætla að hitta Dalai Lama og ekki heldur forsetinn sem er erlendis á Smáþjóðaleikunum. Trúarleiðtoginn kemur reyndar til fundar við utanríkismálanefnd í Alþingishúsinu á þriðjudaginn og þá tekur Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, á móti henni. Fréttastofa reyndi í dag að ná tali af öllum ráðherrum í ríkisstjórninni til að fá svör við því hvort þeir ætluðu að hitta Dalai Lama og ef ekki af hverju. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður vinstri grænna, var á ferð úti á landi og sagði það ekki hafa komið til tals að hitta hann. Ríkisstjórnin væri ekki með samræmda stefnu í málinu og hverjum ráðherra í sjálfs vald sett hvort hann vilji hitta hann. Aðrir ráðherrar sem náðist í sögðust ekki hafa uppi áform um að hitta hann og að það hefði ekki komið til tals. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, sagðist þó ætla á fyrirlestur Dalai Lama á þriðjudaginn. Ekki náðist í forsætisráðherra eða utanríkisráðherra vegna málsins þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Svavar Sigmundsson er látinn Innlent Fleiri fréttir Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Sjá meira