Innlent

Stöðugur titringur á Reykjanesi

Jarðskjálftahrinan á Reykjanesskaga er enn í gangi og hefur verið samfelldur órói í nótt og í morgun, að sögn Veðurstofunnar. Fleiri stórir skjálftar hafa þó ekki mælst frá því síðdegis í gær.

Klukkan korter fyrir átta í morgun varð skjálfti upp á 2,9 stig með upptök í Fagradalsfjalli um níu kílómetra norðaustan Grindavíkur. Þá varð skjálfti upp á 2,2 stig laust fyrir klukkan fimm í nótt á svipuðum slóðum. Þessir tveir skjálftar eru þeir einu sem farið hafa yfir tvö stig frá því síðdegis í gær þegar skjálfti upp á tæp fjögur stig mældist, ef undan er skilinn jarðskjálfti sem varð í Grímsvötnum í Vatnajökli klukkan hálfátta í gærkvöldi en sá mældist 3,2 stig.

Vísindamenn vöruðu í gær við því að búast mætti við stærri skjálfta í Reykjanesfjallgarði, allt að 5,5 stig, og þá nær Reykjavík.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×