Innlent

Framsóknarmenn styðja ekki ESB tillöguna

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að þingmenn Framsóknarflokksins muni ekki styðja þingsályktunartillögu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún uppfylli ekki skilyrði flokksins og gangi gegn flokkssamþykkt Framsóknarflokksins. Frá þessu er greint á vefsíðunni Pressunni.

Pressan segir að Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, hafi haldið opinn fund í Þingborg á Selfossi í gær þar sem þetta kom meðal annars fram í máli Sigurðar Inga. Ekki náðist í Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins, við vinnslu þessarar fréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×