Skuldir aukast um 13 milljarða 23. desember 2009 04:30 Húsnæði Höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána mun hækka um eitt prósent vegna nýsamþykktra skattahækkana að mati ASÍ.Fréttablaðið/Vilhelm
Verðtryggðar skuldir landsmanna munu hækka um þrettán milljarða króna vegna skattahækkana sem samþykktar voru á Alþingi á mánudag. Alþingi samþykkti að hækka virðisaukaskatt úr 24,5 prósentum í 25,5 prósent. Auk þess hækka gjöld á áfengi, tóbak, eldsneyti og bíla, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Þessar hækkanir hafa bein áhrif á húsnæðislán landsmanna. Samkvæmt útreikningum ASÍ munu þessar hækkanir leiða til um eins prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs, segir Henný Hinz, hagfræðingur hjá ASÍ. Þetta þýðir einnig að verðtryggð húsnæðislán hækka um eitt prósent. Höfuðstóll lána landsmanna hækka því um 100 þúsund krónur fyrir hverjar tíu milljónir sem fengnar hafa verið að láni. Henný tekur fram að ekki sé búið að reikna með ýmsum öðrum verðhækkunum sem mögulegt sé að verði um áramót, til dæmis hjá sveitarfélögunum. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum námu verðtryggðar skuldir íslenskra heimila um 1.175 milljörðum króna í lok síðasta árs. Nýrri tölur hafa ekki fengist, en sé reiknað með að þær hafi nokkurn veginn fylgt neysluverðsvísitölu má áætla að þær nemi nú um 1.300 milljörðum króna. Eins prósents hækkun á neysluverðsvísitölu mun hækka þessar skuldir um þrettán milljarða króna. - bj
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira