Krummi kominn í poppið 17. september 2009 05:00 Krummi Vinnur að fyrstu sólóplötu sinni og prófar sig áfram í danspoppi með vini sínum.
Krummi Björgvinsson er staddur í Atlanta þar sem hann vinnur að sólóplötu. Auk þess hefur rokkarinn verið að fikra sig út í danspopptónlist. „Mig langaði að komast burt frá Íslandi í smá tíma til að fá frið og innblástur. Ég á nokkra vini hérna í Atlanta sem ég kom til að hitta og slaka á með. Á meðan ég er hér ætla ég að búa til demo úr lögum sem ég er búinn að vera að semja," segir Krummi Björgvinsson sem nú er staddur í Atlanta í Bandaríkjunum. Undanfarið hefur hann verið að semja tónlist á kassagítar sem hann tekur upp á lítið upptökutæki. „Þessi plata verður mjög einföld í sniði. En ég veit ekki hvernig útkoman verður eða hvort hún mun koma út á næstunni." Aðspurður segir Krummi að hljómsveitirnar Mínus og Esja séu enn starfandi þrátt fyrir að meðlimir þeirra séu að vinna að öðrum verkefnum. Hann segir að ný plata með Esju sé væntanleg á næsta ári og að Mínusmenn séu að huga að tónleikaferðalagi. Auk sólóverkefnisins hefur Krummi verið að semja popptónlist ásamt Halldóri, hljómborðsleikara Esju. „Ég hef verið að fikta svolítið við danspopptónlist með Dóra, félaga mínum. Mér finnst frábært að vinna með honum og þetta verkefni mun vonandi gera eitthvað frábært í náinni framtíð," segir Krummi sem virðist ekki sitja auðum höndum þessa dagana. Auk þess að semja nýja tónlist fyrir væntanlega sólóplötu hefur hann tekið að sér að fara með hlutverk í nýrri kvikmynd, en tökur á henni hefjast á nýju ári. „Já, ég mun leika í bíómynd á næsta ári, svo er ég að fara að spila á Airwaves, taka upp eins mikið af tónlist og ég mögulega get og er með eitt níðþungt rokkband í burðarliðnum. Það band mun skarta nokkrum stærstu þungarokkurum Íslands. Svo ætla ég bara að njóta þess að vera með fjölskyldu og vinum og láta mér líða vel."
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira