Aukið samstarf háskóla í deiglunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. maí 2009 09:43 Katrín Jakobsdóttir.
Til greina kemur að auka samstarf háskóla á Íslandi til þess að ná fram aukinni hagræðingu, að sögn Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra. Katrín segist hafa rætt breytingar á starfi skólanna til að ná fram aukinni hagræðingu. „En ekki sameiningu háskólanna endilega heldur aukið samstarf að minnsta kosti. Jafnvel hvernig hægt er að skipta verkum meira en verið hefur," segir Katrín. Samkvæmt upplýsingum á vef menntamálaráðuneytis eru sjö háskólar starfandi í landinu og hugsanlega er hægt að skera niður ríkisútgjöld með því að ná fram hagræðingu í rekstri þeirra. Katrín bendir þó á að í skólunum hafi verið byggt upp mjög merkilegt starf sem mikilvægt sé að viðhalda á sama tíma og auknu samstarfi sé náð fram. Katrín segir að þetta yrði gert til að ná fram aukinni hagræðingu við rekstur skólakerfisins til lengri tíma litið. „En þetta er eitthvað sem tekur kannski svolítinn tíma að koma á," segir Katrín. Hún bendir á að innan skólanna sé vilji til þess að auka samstarf, til dæmis með því að nemendur geti tekið námskeið í öðrum skólum en þeim sem þeir eru skráðir við nám í. Að lokum bendir ráðherrann á að þótt þessi mál hafi verið rætt séu þau ekki komin á neitt ákvörðunarstig. En unnið verður áfram í þeim anda sem hefur verið gert.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Fleiri fréttir Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi Sjá meira