Innlent

Biskup Íslands: Guð hjálpi okkur öllum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Herra Karl Sigurbjörnsson hvetur til bæna næstkomandi sunnudag. Mynd/ GVA.
Herra Karl Sigurbjörnsson hvetur til bæna næstkomandi sunnudag. Mynd/ GVA.
„Að þessu sinni bið ég þess að við biðjum fyrir þjóðinni í þeim vanda sem við er að etja nú, þar sem afkomu þúsunda heimila er ógnað. Biðjum um æðruleysi, kjark og vit í erfiðleikum öllum," segir herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, í bréfi sem hann hefur ritað prestum í tilefni af hinum almenna bænadegi sem er næstkomandi sunnudag.

Á þeim degi sameinast kirkja landsins í bæn fyrir ákveðnu fyrirbænarefni. Að þessu sinni hvetur biskup Íslands til þess að beðið verði fyrir þjóðinni í þeim vanda sem hún glímir nú við.

„Biðjum um leiðsögn Guðs anda þeim sem ráða málum, og þeim sem hjálpa öðrum með ráðum og dáð. Biðjum um huggun og styrk þeim sem eru komin í þrot. Biðjum um anda samstöðu og umhyggju í samfélaginu, um anda réttlætis, sannleika og friðar, anda hugrekkis, þolgæðis og þrautseigju, anda visku og náðar, anda trúar, anda vonar, anda Jesú Krists," segir herra Karl í bréfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×