Innlent

Lög um greiðsluaðlögun fasteignalána taka gildi á föstudaginn

Ragna Árnadóttir er dómsmálaráðherra. Mynd/ Daníel Rúnarsson.
Ragna Árnadóttir er dómsmálaráðherra. Mynd/ Daníel Rúnarsson.
Lög um tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna á íbúðarhúsnæði taka gildi næstkomandi föstudag. Með lögunum getur eigandi íbúðarhúsnæðis leitað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sem tryggðar eru með veði í húsnæði hans, ef hann sýnir fram á að hann sé og verði um einhvern tíma ófær um að standa í fullum skilum á greiðslum. Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna hefur tekið að sér að annast upplýsingagjöf um úrræðið.

Í fréttatilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að áður en einstaklingur óski eftir tímabundinni greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna verði hann að hafa leitað annarra tiltækra greiðsluerfiðleikaúrræða sem í boði eru hjá lánastofnunum og sýna fram á að þau úrræði hafi reynst ófullnægjandi. Sé svo geti hann óskað eftir greiðsluaðlöguninni með því að senda skriflega beiðni til héraðsdómstóls í því umdæmi þar sem hann á lögheimili.

Taki héraðsdómari beiðnina til greina skal hann skipa umsjónarmann með greiðsluaðlöguninni. Viðkomandi greiðir þá aðeins þær greiðslur af lánum sem talið er að hann geti staðið straum af. Frestað er greiðslu þess hluta skuldbindinga sem eftir verður svo lengi sem greiðsluaðlögun stendur, sem geuri verið í allt að fimm ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×