Innlent

Skora á stjórnina að hætta við fyrningarleið

Stjórn Samtaka fiskvinnslustöðva skorar á ríkisstjórnina að afturkalla fyrirhugaða fyrningarleið í sjávarútvegi. Í ályktun samtakanna segir að fyrningarleiðin feli í sér að afkomu sjávarútvegsfyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólksins verði kippt í burtu á fáeinum árum. Þessi leið muni leilða til fjölda gjaldþrota í sjávarútvegi með ófyrirséðum afleiðingum fyrir starfsfólk fyrirtækjanna og þau sveitarfélög, þar sem útgerð og fiskvinnsla er burðarás atvinnulífsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×