Innlent

Hröktust úr landi undan innheimtuhörku Ólafs Ragnars

Kristján Már Unnarsson skrifar
Hjón frá Akureyri, sem fluttu til Noregs fyrir fjórtán árum, segja að harðar innheimtuaðgerðir í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar hafi orðið til þess að þau hröktust úr landi. Þau eru enn svo sár að þau ætla ekki að snúa aftur fyrr en Ólafur Ragnar fer á eftirlaun.

Í litlum bæ á eyju norðan Stavangurs hafa þau Auðunn Þorsteinsson og Hildigunnur Ólafsdóttir byggt upp fyrirtækið Smien Verksted, sem selur Norðmönnum stiga og handrið. Þau fluttu frá Íslandi með tvö börn eftir að járnsmíðaverkstæði þeirra á Akureyri fór í þrot.

Auðunn segir að fyrirtæki, sem þau unnu fyrir á sínum tíma, hafi farið á hausinn hvert af öðru og þau dregist með. Hið opinbera sýndi þeim enga miskunn þótt síðar kæmi í ljós að þau ættu inni hjá ríkinu. Lögreglan hafi mætt til að loka fyrirtækinu. Þetta hafi verið gert að tilstuðlan Ólafs Ragnars Grímssonar, segir Auðunn.

Þau töpuðu öllu sínu. Fínu fyrirtæki, sem gekk vel, bílum og húsi.

Auðunn vill meina að Ólafur Ragnar hafi hrakið þau úr landi og vonar að hann fari að koma sér á eftirlaun, áður en þau flytja aftur til Íslands.

Saga þeirra verður nánar sögð í Ísland í dag hér á eftir og einnig saga fleiri Íslendinga sem flutt hafa í fyrri kreppum. Hólmfríður Garðarsdóttir og fjölskylda fóru þegar fiskeldið brást, Valgerður Bagley þegar húseignin eyddist á verðbólgubáli á tíma Sigtúnshópsins, og Sævar Sverrisson flutti ungur maður eftir gengishrunið mikla fyrir 40 árum þegar hann sá bjartari framtíð í Noregi.

Hér má sjá innslag úr Íslandi í dag um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×