Eurovision kostar Rússa minnst fimm milljarða Guðjón Helgason skrifar 13. maí 2009 19:29 MYND/GETTYIMAGES
Það kostar Rússa minnst fimm milljarða króna að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Moskvu. Keppnin í ár er sögð mun dýrari en þær sem haldnar hafa verið síðustu ár og ekki er talið að neinn beinn hagnaður verði af henni. Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng sig í úrslti Eurovision söngvakeppninnar í Mosvku á laugardaginn. Lagið hefur þotið upp lista hjá veðbönkum og sem dæmi spáir William Hill veðbankinn breski því fimmta sæti. Nú munu þær þjóðir sem eru sigurstranglegar þetta árið eflaust farnar að huga að því hvort þær hafi ráð á að halda keppnina að ári. Fram hefur komið í fjölmiðlum í Rússlandi að það kosti Rússa minnst 42 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 5,3 milljarða íslenskra króna, að halda keppnina sem er 10 milljónum dala meira en í Serbíu í fyrra. Ekki hefur fengist gefið upp hvað rússneska stöð 1, sem er að meirihluta í eigu rússneska ríkisins, borgar fyrir sinn hlut í keppninni. Skipuleggjandi keppninnar segir fullvíst sé að Moskvuborg og rússneska ríkið komi út í mínus og nái ekki peningum til baka með sölu á Eurovision varningi. Talsmaður Samtaka evrópskra sjónvarps- og útvarpsstöðvar í almannaþjónustu staðfestir það. Talmaður rússneska ríkissjónvarpsins segir Rússa hins vegar fá pólitískan velvilja út á keppnina og svo þurfi að horfa til gjaldeyristekna. Samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Gunnarssyni, dagskrárstjóra Sjónvarps, er áætlaður kostnaður Ríkisútvarpsins vegna þátttöku í keppninni í ár rúmar tuttugu milljónir króna og ætti að vera nálægt því sem hafi verið síðustu ár. Fjórir starfsmenn Sjónvarpsins eru í Moskvu og tólf manna keppnishópur höfundar sem í eru sminka, fatahönnuður og aðstoðarkona. Samkvæmt upplýsingum frá auglýsingadeild RÚV er áætlað að um fjórtán milljónir fáist fyrir auglýsingar í tengslum við Eurovision keppnina.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira