Þingmenn þurfa ekki að hafa bindi Höskuldur Kári Schram skrifar 13. maí 2009 19:10 Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar.
Þingmenn þurfa framvegis ekki að vera með bindi eða slifsi í ræðustól á Alþingi. Nýir alþingismenn sátu á skólabekk í allan dag og kynntu sér starfsemina, siði og reglur. 27 þingmenn taka sæti á Alþingi í fyrsta sinn þegar þing kemur saman á föstudag. Nýliðarnir sátu á skólabekk í allan dag til að kynna sér reglur og starfsemi alþings. „Ég er dálítið spennt. Það er dálítið skrítin tilfinning að ég sé að byrja í nýjum skóla og nýrri vinnu á fimmtugsaldri," segir Lilja Mósesdóttir hjá VG. „Þetta er spennandi og áhugavert viðfangsefni. Þetta er svona verkefni sem þarf að vinna og alltaf þegar maður þarf að byrja á einhverju nýju þá er það mjög spennandi. Ég held að þetta verði gaman," segir Þór Saari hjá Borgarahreyfingunni. Forsætisnefnd Alþingis hefur ákveðið að þingmenn þurfi ekki lengur að vera með bindi eða slifsi í þingsal eða ræðustól. Ekki eru þó allir sáttir við breytinguna. „Mér líst ekkert sérstaklega vel á það. Ég held að það sé alveg tilefni til að setja upp slifsi þegar maður fer upp í eða inn í sal í löggjafarasamkundinni, það er ekki til of mikils mælst," segir Tryggvi Þór Herbertsson hjá Sjálfstæðisflokki. Ásmundur Einar Daðason, er yngsti þingmaðurinn, 26 ára gamall. Þegar Stöð 2 sótti hann heim í síðasta mánuði átti hann eftir að kaupa sér jakkaföt. Ertu búinn að kaupa jakkaföt? „Já ég fór og keypti mér ein jakkaföt í síðustu viku en ég geri jafnvel ráð fyrir því að fá mér önnur." Dýr jakkaföt? „Alltof dýr. Nokkur dilkssverð," sagði Ásmundur Einar.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira