Innlent

Guðfríður Lilja nýr þingflokksformaður VG

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir

Á þingflokksfundi Vinstri grænna í dag var kjörin ný stjórn þingflokksins en í henni sitja formaður, varaformaður og ritari. Nýr formaður þingflokksins er Guðfríður Lilja Grétarsdóttir en því starfi gegndi Jón Bjarnason áður sem nú er orðinn sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Álfheiðru Ingadóttir verður áfram varaformaður en Björn Valur Gíslason tekru við af Atla Gíslasyni sem ritari þingflokksins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá VG.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×