Segir fjölmiðla hafa lagt flokkinn nánast í einelti 26. apríl 2009 10:59 Ásta Möller
Ásta Möller þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur átt sæti á Alþingi síðustu tíu árin dettur nú af þingi. Hún segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart miðað við skoðanakannanir fyrir kosningar. Hún segist ekkert hafa ákveðið hvað taki nú við en margt hafi spilað inn í slæmt gengi flokksins í kosningunum. Ásta segir fjölmiðla ekki hafa hjálpað flokknum og hamast hafi verið á Guðlaugi Þór alla páskanna á meðan þagnarhjúpur hafi verið myndaður um Ingibjörgu Sólrúnu varðandi styrkjamálin. „Mín viðbrögð eru svosem engin, maður var búin að sjá þetta fyrir," segir Ásta sem hefur átt sæti á Alþingi síðan 1999. Hún viðurkennir vel að mótvindurinn hafi verið mikill fyrir flokkinn í kosningabaráttunni og segir margt hafa spilað þar inn í. „Fjölmiðlar voru til dæmis ekki beint að hjálpa okkur. Það var í raun makalaust hvernig fjölmiðlar lögðu flokkinn nánast í einelti og um leið og eitthvað kom upp sem snéri að öðrum flokkum þá var það kæft niður," segir Ásta og nefnir þar sérstaklega umræðuna um styrkjamálin svokölluðu. „Það var hamast á Guðlaugi Þór alla páskahelgina. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir síðan sjálf á annan í páskum að hún hafi haft samband við ýmis fyrirtæki og þá var bara myndaður þagnarhjúpur um það mál, mér fannst það sérstakt," segir Ásta. Hún vill þó ekki skella allri skuldinni á fjölmiðla en segir þessa umræðu vissulega haft áhrif á niðurstöðuna. „Það var hinsvegar löngu ljóst að við færum illa út úr þessum kosningum. Ég velti hinsvegar fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn tók þessa opinskáu umræðu innan sinna raða einn flokka og benti fingri á sína eigin liðsmenn á meðan aðrir flokkar gerðu það ekki. Í stað þess að flokkurinn fengi kredit fyrir það þá er spurning hvort honum hafi verið refsað enn frekar." Ásta segist ekkert hafa ákveðið hvað hún taki sér nú fyrir hendur, hún sé með góða menntun og sé því ekki á flæðiskeri stödd.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira