Magnús Eiríksson: Þetta var eitthvað annað en hassið 5. október 2009 05:00 Magnús Eiríksson og Pálmi Gunnarsson voru lengi að ná sér eftir að hafa verið brottnumdir af geimverum á Snæfellsnesi. „
Karlinn leyfði mér að lesa hana yfir og hún er mjög fín. Það eru sko engin leiðindi þarna í gangi enda er Magnús mikill sögumaður," segir Pálmi Gunnarsson, aðalsamstarfsmaður Magnúsar Eiríkssonar um ævisögu þess síðarnefnda, Reyndu aftur. Bókin er væntanleg 10. október. Tómas Hermannsson skráði söguna og er óhætt að segja að þetta sé berorðari ævisaga en gengur og gerist hjá íslenskum poppurum, meira „djúsí". Magnús dregur hvergi undan í sögum af sukki, rokki og rugli. Ein allra furðulegasta sagan er um það þegar þeir Pálmi voru brottnumdir af geimverum úti á Snæfellsnesi. „Ég er sannfærður um að geimverur tóku okkur í smáferðalag," segir Magnús og Pálmi er á sama máli. „Ég bakka þessa sögu 100 prósent upp," segir hann. Svona er sagan. Rúnar Marvinsson, kokkur á Búðum á Snæfellsnesi, hafði leyft Pálma og Magnúsi að vinna að músik fyrir næstu Mannakorns-plötu á hótelinu gegn því að spila fyrir gestina. „Við ákváðum að drekka lítið. Ekkert sterkara en rósavín og reykja pínulítinn hassmola sem við vorum búnir að eiga lengi," segir Magnús í bókinni. Hann heldur áfram: „Við fórum snemma að sofa og vöknuðum hressir og kátir daginn eftir. Það var alveg heiðskír himinn. Sól og blíða. Við ákváðum að labba út í hraunið að Búðakletti. Á leiðinni ákváðum við að fá okkur aðeins í haus af molanum góða. Bara eina pípu. Við spjölluðum um væntanlega plötu og vorum í fínu formi. Klukkan var svona tíu að morgni. Suðvestanmegin við Búðaklett er mosavaxin brekka. Þar lögðumst við niður og ákváðum að fara í sólbað enda ekki ský á himni. Ég leggst í mosavaxna brekkuna, beint á móti sólu. Smell ofan í mosann hálfuppréttur og fell óðar í trans. Þungan svefn. Ég var samt búinn að sofa vel um nóttina. Pálmi sofnar svona tveimur metrum frá mér í nákvæmlega sömu stellingu." Nú fóru undarlegir atburðir að gerast: „Þarna hverfum við félagarnir og vöknum ekki aftur fyrr en sjö klukkustundum síðar, þegar klukkan er orðin fimm um daginn. Þá erum við búnir að liggja í nákvæmlega sömu stellingu, beint upp í sólina, í sjö klukkustundir. Undir öllum venjulegum kringumstæðum hefðum við átt að vera skaðbrunnir enda hafði ekki dregið fyrir sólu allan daginn. Mér var heitt þegar ég vaknaði en ég var nákvæmlega jafnfölur og þegar ég lagðist til svefns. Við Pálmi vöknuðum alveg á sama augnablikinu." Magnús og Pálmi voru svo speisaðir að þeir gátu ekki talað. „Það var eitthvað allt annað en hass- eða áfengisvíma sem var í gangi þarna," segir Magnús. „Eitthvað óútskýranlegt. Allur máttur var úr okkur. Við rétt komumst upp á hótel." Hvorki varð úr lagasmíðum né tónleikahaldi og félagarnir voru lengi að ná sér. „Ég klóra mér enn í kollinum út af þessum tímum sem við töpuðum þarna," segir Pálmi. „Við Magnús tölum oft um þennan atburð. Við vorum lengi í afar sérkennilegu ástandi á eftir þetta, en það þarf kannski ekki mikið til."drgunni@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira